Haraldur hárfagri (lúfa)

Eru Íslendingar ekki bara að minnast upprunans, þegar forfeður okkar flúðu ofríki Haraldar og skatta, þegar hann var að sameina Noreg. Þá held ég að fólk horfi á stærðarmun ríkjanna og telji hættu á ofríki Norðmanna í krafti stærðarinnar, og Ísland yrði í raun eins og fylki í Noregi. Vissulega eru þetta skyldar þjóðir og hafa marga sameiginlega hagsmuni, þám., vonandi olíu eftir nokkur ár. Í Norðmenn vantar þó Írska þáttinn, sem við höfum frá formæðrum okkar sem voru flestar frá Bretlandseyjum skv., genarannsóknum. Norðmenn eru þannig heldur reglufastari en við og meiri trúmenn, og hef ég reyndar heyrt þeim lýst þannig, að sé eitthvað ekki beinlínis leyft, þá sé það bannað, sem ég hef reyndar einnig heyrt um Svía, sem er öfugt við Ísland, þó eitthvað virðist það vera að breytast í seinni tíð.

Ég tel perslega að ríkjabandalag þessara frændþjóða gangi ekki upp, frekar en samband okkar við Dani á sínum tíma. Ég held að ESB sé mun heppilegra fyrir okkur, enda er það efnahagsbandalag en ekki ríkja, og þjóðirnar halda sjálfstæði sínu í bæði ytri og innri málefnum, sem ekki er raunin með ríkjabandalag í anda USA, þar sem yfirstjórnin fer með sameiginleg mál og utanríkismálefni, og er ég anzi hræddur um að þar réðu Norðmenn.  


mbl.is Þverrandi áhugi á ríkjabandalagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Gunnarsson

Höfundur

Sigurður Gunnarsson
Sigurður Gunnarsson

Lögfræðingur á suðurlandi í atvinnuleit

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 499

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband