16.11.2009 | 10:07
Út yfir gröf og dauða.
Þetta er hugljúf frétt, þó við fyrstu sín sé erfitt að sjá tilganginn, nema náttúrulega ódrepandi ást. En þó ég þekki ekki frönsk erfðalög, finnst mér ekki ólíklegt að þau séu ekki ósvipuð þeim íslensku, þar sem sambúðarfólk á ekki erfðarétt eftir hvort annað nema gerð hafi verið erfðaskrá. Þetta er því mannúðleg aðferð franskra til að veita eftirlifandi sambúðaraðila sömu réttarstöðu, og hefðu þau verið í hjónabandi. Þessa aðferð mætti alveg taka upp í norrænum rétti, svo ekki komi upp sama dæmi og í Svíþjóð, þar sem frægur metsöluhöfundur sem dó fyrir aldur fram, skildi sambýliskonuna eftir arflausa, þar sem þau voru ógift og höfðu ekki gert erfðaskrá. Þá þekki ég mörg dæmi um sambærilegt hér á Íslandi.
Giftist löngu látnum unnusta sínum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Sigurður Gunnarsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.