Utanþingsstjórn

Mér ofbýður orðið stefnuleysi sumra í ríkisstjórninni, þannig virðast sumir "þjóðernissinnaðra sósíallista án razizma" allsekki átta sig á að þeir eru í ríkisstjórn, heldur halda áfram að vera á móti. Væri ekki ráð að breyta stjórnkerfinu þannig að þing og frkvald séu alveg aðskilin þannig að ráðnir séu fagmenn í ráðherraembættin, en þingmenn gegni því stóra hlutverki einu að setja leikreglurnar. Mér sýnist enda að fagfólkið sé það sem er að standa sig best í dag, en ég frátel þó Jóhönnu sem er frábær. Hvaða vit er í því að setja fólk yfir málaflokk sem það hefur ekkert vit á þó það sé vel menntað á einhverju öðru sviði. Ekki fengi ég vinnu sem læknir þó ég sé með háskólapróf og réttindi til að hugsa og tala fyrir annað fólk. Geri ég það að minni uppástungu að allir ráðherrar nema forsætisráherra séu ráðnir eftir hæfni en ekki pólitík, og jafnvel að forsætisráðherra sé kjörinn sérstaklega.
mbl.is Ögmundur ekki ákveðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Flott! Utanþingsstjórn! Alltaf verða fleiri sammála okkur með utanþingsstjórn.

Skoðaðu þetta skjal:

Eru hugmyndir í "Okkar Ísland" óraunhæfar?

Hér er 38 blaðsíðna skjal sem er með grunnhugmyndir leikmanns um stjórnsýslu fólksins og viðréttingu landsins úr kreppunni.

Ath. "Okkar Ísland" byggist á því að íslendingar taki á málum sínum sjálfir!

Hér er 1.03 af "Okkar Ísland" skjalinu í Word  .doc (skjalið í heild með viðbætum og nýjum hugmyndum á réttum stað)

Hér er 1.03 af "Okkar Ísland" skjalinu í nýrra Word .docx skrá (skjalið í heild með viðbætum og nýjum hugmyndum á réttum stað)

 http://www.mediafire.com/?2yego20ndmz

Endilega lestu þetta skjal. Hér er hugmynd að nýrri stjórnsýslu fólksins.

Eins og ég sé málin þá er næsta verk fyrir forseta vorn fyrir næstu kosningar að gefa utanþingsstjórn næst umboð. Þessvegna þarf gott fólk að koma sér saman og kjósa í slík afl. Þegar að þessi stjórn er hætt.

Guðni Karl Harðarson, 2.7.2009 kl. 18:31

2 identicon

Sammála !

Utanþingsstjórn . Þetta lið er gagnslaust .Ekki síst Gylfi og Ragna ,sem langaði bara í sæti .Þetta er andstyggilegt ástand .

Kristín (IP-tala skráð) 2.7.2009 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Gunnarsson

Höfundur

Sigurður Gunnarsson
Sigurður Gunnarsson

Lögfræðingur á suðurlandi í atvinnuleit

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 470

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband