Vatn á myllu mótmælenda !!

Hélt að svona vitleysa væri úr sögunni í seinni tíð. Fréttin hefði frekar átt við á tímum galdraofsókna þegar verið var að útrýma leifum heiðnar þekkingar á vesturlöndum. En trúi þeir sem trúa vilja.
mbl.is Segir djöfulinn hafa hreiðrað um sig í Páfagarði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitískur skrípaleikur

Finnst þessar meintu launalækkanir vera sýndarleikur, og felast f. og fr. í að skipta laununum í tvennt, þ.e. dagvinnulaun og fasta yfirvinnu (einingar), í stað þess að greiða mönnunum bara fasta upphæð í einu lagi fyrir að sinna starfi sínu. Tek fram að veit ekki hvort um er að ræða einhverja raunverulega lækkun. Vann eitt sinn í akkorði við að landa úr togurum og þá fengum við fasta upphæð fyrir löndunarmagnið hvort sem við vorum klukkutímunum lengur eða skemur að landa. Sama á að sjálfsögðu að gilda um ríkisforstjóra, það liggur fyrir hvaða verkefni þeir hafa og þau geta verið misjöfn eftir tímabilum, og þetta er því pólitískur skrípaleikur til að geta sagt að þeir hafi lægri "föst" laun en Jóhanna, þegar reyndin er allt önnur þegar horft er til fastra heildarlauna.

Tek fram að ég er ekkert að spá í réttmæti launa hvers og eins þ.m.t. Jóhönnu.


mbl.is Laun 22 forstjóra lækkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Læknamistök?

Kristín á samúð mína alla, enda hef ég lent í því að fá gat á magann vegna bakteríusýkingar, þannig að magainnihald með saltsýru og öðru flæddi út. Sá sársauki hefur þó væntanlega verið minni. Mér var þó allavega hægt að halda á morfíni fyrir skurð og svæfingu sem væntanlega má ekki þegar börn eiga í hlut. Leyfi mér að geyma skoðun á fréttinni, því verið geta læknisfræðilegar ástæður fyrir lítilli deyfingu sem ekki koma fram í fréttinni, enda aðstæður alltaf viðkvæmar þegar fæðingar eiga í hlut, og hugsanlega eitthvað þannig sem lá að baki. Ef ekki sting ég uppá amerísku leiðinni.
mbl.is „Þetta var ekkert smá sárt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þó fyrr hefði verið.

Að sjálfsögðu ætti þetta að gilda líka um hæstsettu embættismenn þjóðarinnar, einsog sýslumennn og ráðuneytisstjóra.
mbl.is Ráðherra settar skorður við skipun dómara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar fréttir

Þó ég þykist vera trúaður, hef ég aldrei haft trú á, að þröngva minni trú upp á aðra. Gott að kaninn snýr sér að upprunanum og leyfir fólki að trúa eins og því finnst réttast, án dulinna skilaboða annarsstaðar frá.
mbl.is Biblíutilvitnanir fjarlægðar af byssusjónaukum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

vonandi

Ómögulegur

sit ég hér

 Hlusta á vindinn

hví er svo

ástinni aldrei lynnir


Að eiga fyrir daglegu brauði.

Vissulega er rétt að ekki á að svindla á kerfinu til að fá meira í sinn hlut en fólki ber. Kerfið er hinsvegar þannig að sérstaklega foreldrum er stórlega mismunað í styrkjum vegna framfærslu barna sinna, eftir því hvort fólk er í sambúð eða ekki. Rétt er að framfærsla sambúðaraðila er skv. bókinni ódýrari en einstaklinga, en börnin kosta það sama hvort sem þau búa hjá öðru foreldri en báðum. Þannig getur munað tugum þúsunda í styrki á mánuði eftir því hvort fólk skrái sig í sambúð eða ekki. Það er því auðskilið að fólk leiti allra ráða til að eiga fyrir brauðinu í börnin og sjálft sig, þó það sé flestum erfitt að svindla. Fólk sér heldur ekki persónulegan svindlþola, heldur eitthvað batteríi sem því virðist gefa og taka af almenningi eftir reglum sem virðast samdar að eigin geðþótta. Núverandi skattaaðgerðir gagnvart almenningi vegna barnaframfærslu og fæðingarorlofs, munu þó með tímanum draga úr þessu svindli, því fólk fer einfaldlega að hætta að hafa efni á því að eiga börn, og yrðu langtímaáhrif til sparnaðar jákvæð að því leiti að í fyrstu væri hægt að fækka í heilbrigðisstéttum og síðar í menntakerfinu.    


mbl.is Bótasvik eru mikið vandamál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimilisvænar hækkanir

Ekki verður annað sagt en að þessar hækkanir á bensíni, veitingahúsamáltíð ofl., séu heimilisvænar. Þetta hvetur fólk, sem hefur þolað tekjuminnkun og hækkun annarra skatta til að vera heima hjá sér, stunda sjálfbæran búskap eftir getu og vera ekkert að leggja í óþarfa ferðalög, og hvað þá út að borða. Þannig geta flestir ræktað sitt eigið grænmeti og bruggað sitt vín og #landa", enda ekki flókið. Þá getur það sleppt óþarfa ferðalögum til vina og ættingja í öðrum landshlutum, og landsbyggðarfólk fer ekki nema í allra brýnustu erindum í bæinn.

Aukaverkanir geta að vísu verið að ekki fást áætlaðar tekjur í ríkiskassann, og veitingabransinn tapar einhverju. Viðbúið er einnig að smygl og brugg aukist.


mbl.is Áfengisgjaldið hækkar um 42% á einu ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lesbískur lýruleikari

Hér er slóðin á Arion, en hann var forngrískur lýruleikari frá Lesbos, sem var rænt af sjóræningjum og bjargað af höfrungum. http://en.wikipedia.org/wiki/Arion Átta mig ekki alveg á bankatengslununum, nema kannski ræningjaþættinum.
mbl.is Kaupþing verður Arion banki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfseyðingarhvöt?

Fyrst vil ég taka fram að að ég er af Knudsen ætt, sem er komin af dönskum gyðing í byrjun 19aldar. Mér virðist sem frændur mínir í Ísrael séu að ná því að gera út af við allan stuðning hjá almenningi og stjórnendum í heiminum. Þeir búa til "ghetto" fyrir íbúa palestínu, og virðast stefna ljóst og leynt að því að fæla úr landi þá sem ekki eru gyðingar. Reyndar hefur þeim tekist það með hina kristnu, sem eru nær allir farnir, en verr gengur með múslimana sem engin vill taka við. Sýnist mér stefna hinna gyðinsku Ísraela ýta undir vonleysi múslima, og ýta undir örþrifaráð þeirra. Ekki má heldur gagnrýna gyðingana, jafnvel þó maður sé gyðingur, því þá er vísað í nasista og þeirra fyrirlitlegu skoðanir. Það er erfitt að tilheyra "guðs útvöldu þjóð" en hún má ekki gera það sjálf sem reynt hefur verið svo oft í aldanna rás, að útrýma sér sjálf, með einstrenginshætti og algjöru tillitsleysi við umheiminn.  
mbl.is Leyfa stækkun landnemabyggðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sigurður Gunnarsson

Höfundur

Sigurður Gunnarsson
Sigurður Gunnarsson

Lögfræðingur á suðurlandi í atvinnuleit

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 445

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband